09. nóvember 2006 klukkan 02:33
Mér finnst ég bara ekki hafa farið út meðal fólks í mánuð! En svona í alvöru talað þá er ég búinn að vera að taka mig á í náminu sjáið til :). Planið er að útskrifast núna um jólin og bendir bara helvíti margt til þess að það muni takast eftir allt saman! Kominn tími til þar sem helvítið er komið hátt á þrítugsaldur og meðal algerra öldunga í stofnununni.
Helgin mín fór semsagt meira og minna í lærdóm, þó ég hafi skroppið eylítið út til að viðra kroppinn. Á föstudaginn síðasta á snilldarmyndina Borat!: Cultural Learnings of America for Make Benefit Glorious Nation of Kazakhstan, Ekkert smá nafn það! ég hef sjaldan á ævinni legið í jafn miklum krampa yfir einni mynd! for real þetta er bara held ég fyndnasta mynd seinni tíma! Ég man eftir einu skipti að ég hafi hlegið meira og það var á "Ég var einu sinni nörd" þegar ég sá það í fyrsta skipti. Til þess að eyðileggja ekki fyrir þeim sem ekki hafa séð myndina ætla ég ekki að segja frá atriðum myndarinnar. Please see his movie-film, if it not success he will be execute.
Allan laugardaginn sat ég heima við ritgerðarsmíði, sem var frekar leiðinlegt til lengdar. En ég þurfti að klára þetta fyrir gærdaginn.. sem ég gerði :D og búinn að skila, fyrstur meira segja. En já Garðar vildi um nóttina fá sér að borða og bauð mér með og ekki nóg með það heldur borgaði líka mat ofan í fátækann námsmanninn! Spáið í góðmennskunni, sannkallaður engill þar á ferð. Tókum smá rúnt um bæjinn og hittum Júlí sem hafði hringt í Garðar og vildi fá okkur með sér á Barinn, veit ekki alveg útaf hverju því við vorum báðir edrú og lítil stemming í okkur. Þegar ég var nýkominn heim fór rafmagnið af húsinu! um miðja nótt og ég bara ætlaði ekki að ná að setja það aftur á :| ógeðslega pirrandi var í 10 mínútur útí bílskúr að bisa við þetta og þá kom pabbi, hann hélt að það væri einhver að brjótast inn og bjóst ekkert við mér þarna. á endanum komst rafmagnið aftur á svo ég gat farið að sofa laus við óttan um að allt mundi fara á flot uppi útaf ískápunum.
Sunnudagurinn fór bara í lærdóm, gerði ekkert skemmtilegt og ekkert gerðist að ég muni :S.
Í gær mánudag fór ég í skólann og skilaði ritgerðinni minni sem ég greindi frá að ofan. En það besta við skóladaginn var matreiðsla þar sem ég fékk gourmé mat dauðans! við erum að tala um dádýralund, og heilsteiktar gæsa og anda bringur!! Shit þetta var einum of gott, lá þarna afvelta eftir þetta, borðaði skammta fyrir svona fjóra kannski og var orðinn gersamlega sprunginn! Samt hélt ég áfram að týna af bökkunum og ofan í mig því þetta var bara svo rosalega gott. Ef ég væri ekki með meltingarkerfi eins og ég er með væri ég örugglega spikfeitur :|
Í dag vaknaði ég um hálf 1 leitið og ætlaði í Íþróttir niðri í strandgötu en komst þá að því að Geir(kennarinn) var veikur, týpískt! svo ég nýtti tímann í að útbúa reikning vegna fjárstyrks fyrir útskriftarhópinn minn, fór svo í þessa tvo tíma sem ég átti að fara í og rölti svo heim. Ég þoli ekki að eiga ekki bíl! Maður er alltaf eins og einhver öreygi þegar maður mætir í skólann fótgangandi, ég get svarið það að svona 85% samnemenda minna eru á bíl, og ef ekki bíl þá á einhverjum vespum eða skellinöðrum (ekki það að mig langi í svoleiðis +o(. )
Um daginn komu litlir drengir upp að mér þar sem ég var alsaklaus að labba heim úr skólanum, þeir voru svona mestalagi 13 ára en litu samt út fyrir að vera 11 og spurðu "heyrru áttu sígó", og ég leit á þá undrandi og svaraði "nei, en áttu tíúskall?", litli strákurinn sagði "haaa,,, nehh akkru?" og ég svaraði "ég er með gott kók, ef þú ert interested" þá horfði hann á mig eins og ég væri að miða á hann byssu og gekk nokkur skref afturá bak og vinurinn með og fóru á bak við eitthvað hús skíthræddir. hahhaahhahaha alger snilld! Þoli ekki þegar lítil börn eru að fikta við reykingar.. þetta er bara svo óhemjulega asnalegt. En fyrir þeim er þetta alger töffarasprauta, verða alveg geðveikt svalir allt í einu, ég hugsa bara "kemur".
Held að þetta sé orðið gott :) farinn að finna mér eitthvað gott að borða, Sionara